4.5.2012 | 18:24
Lokahóf og sumarfrí
Nú er karfan komin í sumarfrí og ég hlakka til að sjá sem flesta á nýju körfboltaári. Aftur á móti fá stelpurnar í 4. bekk nýjan þjálfara og óska ég þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Lokahóf yngri flokka Keflavíkur verður haldið í Toyotahöllinni við Sunnubraut fimmtudaginn 10. maí kl. 18.00. Það verða veittar viðurkenningar og grillaðar pylsur, ég hvet alla til að mæta og eru foreldrar og aðrir aðstandendur velkomnir.
Sumarkveðja,
Helena þjálfari
ÁFRAM KEFLAVÍK :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2012 | 21:59
Dagurinn í dag :o)
1. - 2. bekkur fékk skvísur frá Njarðvík í heimsókn þar sem að þeim var skipt í fjögur lið og liðin spiluðu á móti hvort öðru. Það var mikil keppni eins og alltaf þegar þær keppa við önnur lið og sýndist mér að allar hafi skemmt sér mjög vel.
Takk Njarðvík fyrir heimsóknina og velkomnar aftur :)
Einnig vil ég þakka Ástu Sóllilju, Kareni, Elvu Lísu og Nínu Kareni fyrir aðstoðina en þær dæmdu leikina fyrir okkur :)
kv. Helena þjálfari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2012 | 23:13
Páskafrí
Þá er karfan hjá skvísunum komin í páskafrí.
Æfingar byrja aftur miðvikudaginn 11. apríl.
Hafið það gott í fríinu.
kv. Helena þjálfari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2012 | 17:11
Föstudagurinn 23. mars
Þar sem að b-salurinn er upptekinn á föstudaginn vegna árshátíðar þá fellur æfingin niður hjá 3. - 4. bekk.
Hittumst hressar á mánudaginn í Heiðarskóla :o)
kv. Helena þjálfari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2012 | 16:56
Föstudagurinn 16. mars
Æfingin hjá 3. - 4. bekk fellur niður föstudaginn 16. mars vegna árshátíða í skólunum.
Sjáumst hressar á æfingu á mánudaginn kl. 15.30 í Heiðarskóla :)
kv. Helena þjálfari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2012 | 07:47
Verðlaunaafhending í dag
Hæ hæ,
verðlaunaafhending verður í íþrótthúsinu við Sunnubraut kl. 15.30. Síðasti leikur í því húsi er búinn kl. 15.00 þannig að þá byrja liðin að raða sér upp inní B-sal fyrir verðlaunaafhendinguna. Vinsamlegast skilið stelpunum af ykkur innst inn í b-sal og fáið ykkur svo sæti inn í A-sal :) Látið þær vera í Keflavíkurpeysunum eða í búningnum. Mikilvægt að mæta tímanlega.
kv. Helena
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2012 | 17:26
Nettómótið - leikjaskipulag fyrir 3. - 4. bekk
Hæ hæ, hér er leikjaplanið fyrir helgina. Ef eitthvað kemur uppá þá vinsamlegast hafið samband við liðsstjórann eða mig. Síminn minn er 8917705.
Allir leikirnir eru í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Mikilvægt að stelpurnar séu mættar 15 – 20 mín fyrir leik. Muna eftir Keflavíkurgallanum, skónum, nesti og vatnsbrúsa. Hér að neðan sjáið þið skipulagið sem er komið, svo mæli ég með því að í Hárgreiðslupartýinu farið þið yfir planið og sjáið hvar er hægt að setja inn sund, mat, hoppukastala og fleira skemmtilegt :o) Veit að einn liðsstjóri ætlar að bjóða liðinu sínu heim í pylsu/pizzu partý fyrir kvöldvökuna á laugardeginum og svo er hugmyndin að þær fari saman á kvöldvökuna. Þær gerðu þetta í fyrra að hittast fyrir kvöldvökuna og gekk það rosalega vel. Spurning hvort einhver vilji gera þetta fyrir liðið sitt :)
Stelpurnar fá mat á laugardeginum og er hann i Fjölbrautaskólanum milli kl. 11.00 - 14.00, einnig er pizzuveislan á sunnudeginum þar.
Kíkjið á www.nettomot.blog.is en þar er hægt að fá bæklinginn og skoða t.d. hvenær leikjagarðurinn og hoppukastalinn er opinn.
Keflavík 15
Sara Lind, Edda, Urður, Ásthildur Eva, Lovísa, Edda Rós og Erna Dís.
Liðsstjóri: Kristján
Föstudagur
Kl. 16.00 – 18.00 Hárgreiðslupartý í sal 2 í Toyotahöllinni
Laugardagur
V 2 kl. 8.00 vs. Njarðvík 10
V 4 kl. 10.30 vs. Fjölnir 17
V 5 kl. 12.00 vs. Stjarnan 18
Kl. 14.00 BÍÓ
Kl. 20.30 Kvöldvaka í íþróttahúsinu við Sunnubraut
Sunnudagur
V 3 kl. 8.30 vs. Hörður
V 5 kl. 12.30 vs. Grindavík 10
Keflavík 16
Gígja, Eygló Nanna, Margrét Jenný, Tara Ársól, Jane María, Sigrún Björg, Helga Guðrún og Bergey.
Liðsstjóri: Ólöf /Gaui
Föstudagur
Kl. 16.00 – 18.00 Hárgreiðslupartý í sal 2 í Toyotahöllinni
Laugardagur
V 3 kl. 10.30 vs. Snæfell 10
Kl. 14.00 BÍÓ
V 2 kl. 17.00 vs. Grindavík 11
V 4 kl. 18.30 vs. Stjarnan 17
Kl. 20.30 Kvöldvaka í íþróttahúsinu við Sunnubraut
Sunnudagur
V 2 kl. 11.00 vs. Þór Ak. – Sparks
V 6 kl. 12.30 vs. KR 15
Ég segi bara góða skemmtun um helgina og ég sé ykkur á hlaupum :)
Áfram Keflavík
kv. Helena þjálfari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2012 | 17:25
Nettómótið - skipulag fyrir 1. - 2. bekk
Hæ hæ, hér er leikjaplanið fyrir helgina. Ef eitthvað kemur uppá þá vinsamlegast hafið samband við liðsstjórann eða mig. Síminn minn er 8917705.
Allir leikirnir eru í íþróttahúsinu í Njarðvík. Mikilvægt að stelpurnar séu mættar 15 – 20 mín fyrir leik. Muna eftir Keflavíkurgallanum, skónum, nesti og vatnsbrúsa. Hér að neðan sjáið þið skipulagið sem er komið, svo mæli ég með því að í Hárgreiðslupartýinu farið þið yfir planið og sjáið hvar er hægt að setja inn sund, mat, hoppukastala og fleira skemmtilegt :o) Veit að einn liðsstjóri ætlar að bjóða liðinu sínu heim í pylsu/pizzu partý fyrir kvöldvökuna á laugardeginum og svo er hugmyndin að þær fari saman á kvöldvökuna. Þær gerðu þetta í fyrra að hittast fyrir kvöldvökuna og gekk það rosalega vel. Spurning hvort einhver vill gera þetta fyrir liðið sitt :)
Stelpurnar fá mat á laugardeginum og er hann i Fjölbrautaskólanum milli kl. 11.00 - 14.00, einnig er pizzuveislan á sunnudeginum þar.
Kíkjið á www.nettomot.blog.is en þar er hægt að fá bæklinginn og skoða t.d. hvenær leikjagarðurinn og hoppukastalinn er opinn.
Einnig verða liðin og leikjaplanið okkar inn á www.kefskvisur.blog.is.
Keflavík 17
Anna Lára, Valý Rós, Emma, Ásdís Birta, Bergþóra Ó og Lovísa Margrét.
Liðsstjóri: Kristín (mamma Önnu Láru)
Föstudagur
Kl. 16.00 – 18.00 Hárgreiðslupartý í sal 2 í Toyotahöllinni
Laugardagur
V 7 kl. 10.30 vs. Ármann 8
V 7 kl. 15.00 vs. Snæfell 9
Kl. 20.30 Kvöldvaka í íþróttahúsinu við Sunnubraut
Sunnudagur
V 8 kl. 8.30 vs. Grindavík 14
V 8 kl. 9.30 vs. Njarðvík 14
Kl. 12.00 BÍÓ
Keflavík 18
Jana, Erna Ósk, Agnes, Aldís Nanna, Júlía Rún, Kolbrún Saga og Rúna
Liðsstjóri: Magga (mamma Jönu)
Föstudagur
Kl. 16.00 – 18.00 Hárgreiðslupartý í sal 2 í ToyotahöllinnI
Laugardagur
V 8 kl. 10.30 vs. Njarðvík 14
V 8 kl. 12.00 vs. Grindavík 13
V 8 kl. 14.00 vs. KR 16
Kl. 15.00 BÍÓ
Kl. 20.30 Kvöldvaka í íþróttahúsinu við Sunnubraut
Sunnudagur
V 7 kl. 11.30 vs. Fjölnir 19
Keflavík 19
Júlía, Tanja, Bergþóra K., Sólveig Eva, Elísa og Gabríela.
Liðsstjóri: Gulli (pabbi Júlíu)
Föstudagur
Kl. 16.00 – 18.00 Hárgreiðslupartý í sal 2 í Toyotahöllinni
Laugardagur
V 7 kl. 12.00 vs. Ármann 8
V 7 kl. 14.30 vs. Haukar 12
V 8 kl. 17.00 vs. Njarðvík 14
Kl. 20.30 Kvöldvaka í íþróttahúsinu við Sunnubraut
Sunnudagur
V 7 kl. 8.30 vs. Snæfell 9
Kl. 12.00 BÍÓ
Ég segi bara góða skemmtun um helgina og ég sé ykkur á hlaupum :)
Áfram Keflavík
kv. Helena þjálfari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2012 | 17:19
Öskudagurinn
Minni á að æfingar falla niður á Öskudaginn hjá 1. - 4. bekk.
kv. Helena
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2012 | 19:59
3. - 4. bekkur - breyting á föstudagsæfingum
Föstudagsæfingin í B-sal verður framvegis kl. 14.20 - 15.10.
kv. Helena þjálfari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)











